Ég er ótrúlega snortin yfir hvað það er gott fólk til sem sýnir samhug. Mér finnst þetta svo fallegt af þeim,“ segir Hjördís Svan Aðalheiðardóttir um friðsamleg mótmæli sem haldin voru síðastliðinn föstudag fyrir utan velferðarráðuneytið. Þar var kominn saman stór hópur fólks, þar á meðal ættingjar og vinir Hjördísar, sem gerði þá kröfu að dætur Hjördísar fengju að dvelja hjá henni á meðan meðferð máls hennar færi fyrir íslenska dómstóla. Hópurinn afhenti jafnframt Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, ályktun þess efnis.
Forræðisdeila við danskan barnsföður
Líkt og DV hefur greint frá áður, hefur Hjördís staðið í forræðisdeilum við danskan barnsföður sinn vegna þriggja dætra þeirra. Nú eru þau með sameiginlegt forræði en dætur þeirra voru fjarlægðar af heimili Hjördísar í júní og færðar til Danmerkur til að dvelja hjá föður sínum.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan
elin@dv.is


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013