„Nei, sko! Íslandsmethafi í hallarekstri dagsblaða og heimsmeistari í gjaldþrotum Seðlabanka farinn að veita fjármálaráðgjöf. Fallegt,“ skrifar formaður borgarráðs, Dagur B. Eggertsson, í athugasemd við frétt DV.is um leiðara Morgunblaðsins þar sem Jón Gnarr er sagður í felum. Heildartap síðasta árs af rekstri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og MBL.is, nam 205 milljónum króna en árið 2010 nam það 330 milljónum króna.
Íslandsbanki afskrifaði í fyrra 994 milljónir af skuldum félagsins við bankann. Þetta má lesa úr nýútkomnum ársreikningi Árvakurs. Fór fyrirtækið í lok síðasta árs í annað sinn í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu hjá bankanum eftir hrunið.
Davíð Oddsson er annar af tveimur ritstjórum Morgunblaðsins en undir hans stjórn varð Seðlabanki Íslands tæknilega gjaldþrota og þurfti ríkissjóður að reiða fram 175 milljarða króna vegna þess.
Í leiðara Morgunblaðsins er Jón Gnarr borgarstjóri gagnrýndur fyrir meint þekkingarleysi þegar kemur að flóknum fjármálahugtökum. Er Jón gagnrýndur fyrir að tjá sig ekki um fjárhagsstöðu borgarinnar sem þarf að fara undir skoðun að mati Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
„Borgarstjórinn sjálfur, sá sem á að bera hitann og þungann af helstu málum, er hvergi sjáanlegur þegar mikið liggur við. Stundum tjáir formaður borgarráðs sig, ef í hann næst, stundum aðstoðarmaður borgarstjóra, en borgarstjóri kemur helst ekki fram nema til að fjalla um einhver aukaatriði og setja á fót einskonar sýningu,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins og bætir við að borgarstjóra beri skylda til að taka afstöðu til mála sem mestu varða hjá borginni.
„Haldi hann áfram að vera í felum og láta aðra um mikilvægustu málefnin er augljóst að hann er ekki að sinna starfi sínu og ætti að segja því lausu,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi