„Ég vona til guðs að þú lendir ekki í leiðindum vegna þess sem þú birtir í blaðinu“

Fréttirnar sem mátti ekki birta

„Ég vona til guðs að þú lendir ekki í leiðindum vegna þess sem þú birtir í blaðinu,“ sagði Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, við blaðakonu Vikunnar, Björk Eiðsdóttur, árið 2007.

Björk bar undir Ásgeir ummæli fyrrverandi nektardansmeyjar, sem starfað hafði hjá Ásgeiri. Hún hafði stuttu áður sagt blaðakonu Vikunnar frá reynslu sinni af störfum fyrir Ásgeir.

„Ég endaði á að vinna fyrir Geira en það var mjög mikið vændi á stöðum hans og gríðarleg pressa á þeim stelpum sem fyrir hann störfuðu að stunda slíkt,“ sagði nektardansmærin við Vikuna. Umfjöllun blaðsins birtist í ágúst árið 2007. Þar lýsti konan starfsferli sínum sem nektardansmær. Um samskipti sín og Ásgeirs sagði hún meðal annars: „Geiri er með mjög margar stelpur í vinnu og samkeppnin því mikil svo þær stelpur sem bjóða ekki upp á neitt meira en dansinn eiga oft í miklum erfileikum með að fá útborgað.“

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.