Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
19:00 › 16. júlí 2012
Warren Hill, fangi á dauðadeild í Georgíuríki í Bandaríkjunum, verður líflátinn á miðvikudag þrátt fyrir að vera talinn þroskaheftur. Hill var dæmdur í lífstíðarfangelsi undir lok níunda áratugar síðustu aldar fyrir að myrða unnustu sína.
Í fangelsinu, þar sem hann afplánaði dóminn, varð hann samfanga sínum að bana og hlaut fyrir það dauðadóm. Árið 2002 lagði Hæstiréttur Bandaríkjanna bann við því að andlega vanheilir einstaklingar fengju dauðadóm. Greindarvísitala hans er 70 stig og er það mat yfirvalda í Georgíu að þrátt fyrir lága greindarvísitölu hafi Hill verið ábyrgur gjörða sinna.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum