„Ríkið rændi mig“

Bar eld að sér við mótmæli í Ísrael

Ljósmyndarar náðu að festa mann á filmu sem bar eld að sér á meðan mótmælum stóð í Ísrael.

Maðurinn sem er á fimmtugsaldri hellti eldfimum vökva yfir sig á mótmælum í Tel Aviv áður en hann bar eld að sér.

Nærstaddir reyndu hvað þeir gátu að slökkva eldinn ýmist með því að kæfa hann eða hella vatni yfir manninn. Aðrir heyrðust kalla eftir sjúkraliðum og vatni.

Maðurinn var þátttakandi í mótmælum á laugardagskvöld þar sem efnahagsástandi í Ísrael var mótmælt.

Ísraelska sjónvarpsstöðin Channel 10 sýndi myndband af manninum. Hann skildi eftir bréf þar sem hann kenndi stjórnvöldum um slæmt efnahagsástand í landinu. „Ríkið rændi mig,“ skrifaði maðurinn meðal annars.

Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að brunasárum hans.

Minnir þetta atvik á þegar ávaxtasalinn Mohammed Bouazizi kveikti í sér í Túnis í desember árið 2010. Varð það kveikjan að fjöldamótmælum í Túnis sem voru upphaf arabíska vorsins svokallaða.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.