Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:34 › 16. júlí 2012
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á laugardag í Vatnsskarði hét Björgvin Smári Jónatansson. Hann var á 63. aldursári og var búsettur á Akureyri.
Bifreið hans lenti utan vegar á Vatnsskarði eftir hádegi á laugardag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi var maðurinn úrskurðaður látinn á slysstað.
Maðurinn var einn í bifreiðinni þegar slysið átti sér stað en tildrög slyssins eru ókunn og rannsókn slyssins ekki enn lokið.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi