Hópur Egypta kom saman og grýtti tómötum, skóm og einni vatnsflösku að bílalest Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Kaíró í gær.
Mótmælendurnir komu sér saman fyrir utan nýlega opnað sendiráð Bandaríkjanna í Alexandríu, þar sem að hún hafði haldið ræðu. Samkvæmt bandaríska miðlinum CNN beindust mótmælin gegn afskiptasemi Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndunum.
Óttast er að Bandaríkjamenn hafi verið komnir til Egyptalands til þess að velja sér hlið í þeim ágreiningi sem nú á sér stað á milli nýkjörins forseta landsins, Mohamed Morsy, og hersins. Herinn tók völdin í kjölfar þess að Mubarak forseta var steypt af stóli og kosningar voru haldnar í ár. En eftir sigur Morsy ákváðu forsvarsmenn hersins að takmarka völd forsetans, sem leitt hefur til þessarar pólitísku togstreitu.
Kveðst hlutlaus í málinu
En Hillary þvertók fyrir það í ræðu sinni í sendiráðinu að Bandaríkin myndu skipta sér af deilunni. „Ég vil taka það skýrt fram að Bandaríkin eru ekki í þeim bransa að velja hver sigri og hver tapi hér í Egyptalandi,“ sagði hún og bætti við að hjá Bandaríkjamönnum væri hvorki vilji né geta væri fyrir því að skipta sér af innanríkismálum í Egyptalandi.
Á laugardaginn ræddi hún við Morsy forseta og átti hún einnig fund með forsvarsmönnum hersins um helgina.
Köstuðu skóm og tómötum
Þegar hún var á leið úr sendiráðinu ásamt starfsfólki sínu hófu mótmælendur svo að grýta tómötum og skóm í átt að bílalestinni. Ásamt þessu hófu þeir að hrópa „Monica, Monica, Monica“ af áfergju.
Að henda skó í einhvern þykir mikil móðgun í Mið-Austurlöndum en George W. Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, varð um árið nærri því fyrir skó í ferð sinni til Íraks. Þá mun „Monica“ hafa verið að vísa til Monicu Lewinsky, sem átti samneyti við eiginmann Hillary, Bill Clinton, á sínum tíma.
Hvorki Hillary né starfsfólk hennar urðu fyrir kasthlut en einn óheppinn egypskur embættismaður ku hafa fengið tómat í andlitið.

Hemmi Gunn fallinn frá