Knattspyrnumaður fær bætur vegna meiðsla í leik

VÍS þarf að borga bætur en ekki tekið fram hversu miklar

Víðir Leifsson, knattspyrnumaður hjá Fylki, fær dæmdar bætur frá Vátryggingafélagi Íslands vegna slyss sem hann varð fyrir í leik í júlí mánuði árið 2008.

Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í dag, en það er VÍS sem er bótaskylt gagnvart Víði á grundvelli slysatrygginga íþróttamanna.

Eins og áður sagði varð slysið í júlí árið 2008 þegar Fylkir spilaði leik við meistaraflokk Hauka en Víðir fékk slink á hægra hné, hneig niður og fékk við það áverka á hnéð. Að sögn Víðis var honum skipt út af strax í kjölfarið og kveðst hann hafa fengið þrýstingsumbúðir sem hann hafi haft yfir.

Eftir slysið leitaði Víðir til bæklunarlæknis og komst að því að hann þyrfti að gangast undir krossbandaaðgerð. VÍS hafnaði hinsvegar bótakröfu sem Víðir gerði vegna málsins og staðfesti Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum niðurstöðu tryggingafyrirtækisins. Víðir tilkynnti hinsvegar ekki slysið fyrr en eftir heilt ár.

Með dómi héraðsdóms er viðkennd bótaskylda VÍS þrátt fyrir að málið hafi ekki verið tilkynnt innan árs og verða bætur því væntanlega greiddar út samkvæmt örorkumati.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.