Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn grunaða um kynferðisbrot gegn konu sem fannst nakin fyrir utan lagermóttökuna við Kjörgarð í miðborg Reykjavíkur á sunnudagsmorgun.
Samkvæmt heimildum DV fannst kona þar nakin fyrir utan lagermóttökuna og var kjóllinn hennar fastur undir nærliggjandi bifreið að sögn vitna. Starfsmenn sem voru í erindagjörðum við Kjörgarð hlúðu að konunni þar til lögregla kom á vettvang og var farið með hana á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota.
Vitni sáu lögregluna ná fjórum karlmönnum á hlaupum stuttu eftir að hún kom á vettvang en þeir voru allir handteknir vegna málsins. Mennirnir eru lausir úr haldi og málið til rannsóknar en engin kæra hefur þó verið lögð fram að svo stöddu að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013