„Það er engin spurning, hann bjargaði lífi hennar,“ segir Bryndís Vilbergsdóttir, systir konu sem fékk hjartastopp við N1 bensínstöðina í Hveragerði 8. júlí síðastliðinn. Bryndís og fjölskylda leita nú að manninum sem beitti systur hennar hjartahnoði í um tíu mínútur þar til sjúkraliðar mættu á vettvang. Hefur orðsending gengið á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem mannsins er leitað svo fjölskyldan geti þakkað honum fyrir lífsbjörgina.
„Það var þarna fólk sem dreif að og þessi maður fór að hnoða hana,“ segir Bryndís í samtali við DV.is en systur hennar heilsast vel og er komin af gjörgæslu og yfir á hjartadeild.
Segir Bryndís að maðurinn sé líklegast ekki frá Hveragerði og kannaðist starfsfólk N1 ekki við hann. Telur Bryndís hann líklegast hafa átt leið hjá líkt og systir sín.
Biður Bryndís þá sem þekkja til mannsins um að hafa samband við sig í síma 848-1735.

Hemmi Gunn fallinn frá