19 ára piltur fjórbrotnaði í andliti þegar að karlmaður réðst á hann aðfararnótt sunnudags í miðborg Reykjavíkur. Árásarmaðurinn er ófundinn en pilturinn þekkir hann ekki. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Daníel Örn Sandholt og frændi hans voru á leið heim eftir að hafa verið að skemmta sér í miðborginni á laugardagskvöldið. Þeir stóðu fyrir utan Pizza Pronto í Bankastræti þegar að að þeim kom maðurinn sem þeir höfðu aldrei séð áður. „Þá labbar strákur upp að mér sem segist ætla að ríða mér í rassgatið og ég segi honum að reyna það,“ sagði Daníel Örn í samtali við fréttastofu Stöðvar tvö, en þá réðst maðurinn á hann og stórskaðaði hann í andliti.
Daníel Örn ætlar sér að kæra árásina, en foreldrum hans var einnig verulega brugðið og segjast hvetja til þess að maðurinn gefi sig fram, eða vitni að árásinni.
„Maður verður bara reiður að fólk skuli geta lent í svona. Þetta breytist bara í ljónagryfju á nóttunni,“ segir faðir Daníels.
Lýsingin á árásarmanninum er sú að hann sé um 177 cm á hæð, krúnurakaður og með skeggbrodda. Maðurinn var þykkur og í gráblárri hettupeysu. Hann réðst á Daníel og hljóp svo upp Laugaveginn en þar eru engar myndavélar sem geta varpað ljósi á það hver hann er. Faðir Daníels hvetur lögregluna til að myndavélavæða þennan hluta borgarinnar.
Daníel var sem áður sagði fjórbrotinn í andliti og gekkst undir augnaðgerð í dag, en óttast var að beinflísar úr kinnbeini væru í auga hans. „Krosslegur fingur að það verði ekki varanlegur skaði,“ segir faðir Daníels, en aðgerð mun hafa heppnast vel.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013