Fjölskyldufaðir myrti börnin sín og framdi sjálfsmorð

Telur lögreglan að um „skelfilegan fjölskylduharmleik sé að ræða“

Það ríkir mikil sorg í Milkwall í Glaucestershire í Bretlandi en svo virðist sem að fjölskyldufaðir þaðan hafi myrt þrjú börn sín og tekið svo sitt eigið líf. Lögregla hafði leitað fjölskyldunnar síðan fyrir helgi.

Það var snemma í morgun að lögreglumenn fundu þau Sam (tólf ára), Becku (átta ára) og Charlotte (sjö ára) látin í trjálendi í Pontesbury Hill. Stuttu síðar fundu þau föður barnanna, Ceri Fuller, 35 ára, en svo virtist sem hann hefði tekið sitt eigið líf með því að stökkva fram af kletti. Hann er grunaður um að hafa myrt börnin.

Lögregla hafði raunar leitað barnanna og Ceri síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Hvorki börnin né Ceri höfðu skilað sér í skóla eða vinnu og óskaði eiginkona Ceri og móðir barnanna eftir því að formleg leit hæfist og hafði þeirra verið leitað dyrum og dyngjum síðan á fimmtudag. Taldi hún jafnvel að eiginmaður hennar hefði farið með börnin í ferðalag á svipaðar slóðir og þau höfðu áður ferðast. Það var þó ekki honum líkt að flytja börnin án hennar samþykkis eða vitundar. Athugull vegfarandi hafði heyrt af því að lýst væri eftir rauðri Land Rover bifreið. Sá hann svipaða bifreið við skógarlendi og hafði samband við lögreglu. Stuttu síðar fundu lögreglumennirnir lík barnanna, um 75 mílum frá heimili þeirra.

Rannsóknarlögreglan hefur gefið breskum fjölmiðlum þær upplýsingar að um morðrannsókn sé að ræða en ekki sé leitað að neinum sem gæti tengst málinu eða verið ábyrgur fyrir því heldur sé Ceri Fuller líklegasti sökudólgurinn. Telur lögreglan að um „skelfilegan fjölskylduharmleik sé að ræða“.

http://www.dailymail.co.uk/news/article-2174206/Father-35-stabs-young-children-aged-12-seven-death-woods-throwing-cliff-quarry.html


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.