„Forráðamenn skólans eða fræðsluyfirvöld á þessum stað leggjast lágt og eru ekki að gera þeim málstað, sem þau sjálfsagt telja sig vera að styðja með þessu, neitt nema ógagn,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins í leiðara mánudagsblaðsins sem nefnist Nýr rétttrúnaður ekki betri en fordómarnir.
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóri, ritstýrir Morgunblaðinu ásamt Haraldi Johannessen. Í leiðaranum fjallar höfundur um mál Snorra Óskarssonar, jafnan kenndur við Betel, sem var sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla á Akureyri í síðustu viku vegna skrifa hans um samkynhneigð á bloggi sínu.
Í leiðaranum er fjallað um hvernig staða samkynhneigðra hafi batnað til muna undanfarin ári. „Vafalítið er að flestum líður betur við þessa breytingu,“ segir leiðarahöfundur sem bendir þó á að það sé nokkrum sem líkar ekki við þessa þróun hér á landi.
„Þeir, sem þannig eru stemmdir, eiga fullan rétt á sínum skoðunum og rétt á að viðra þær opinberlega, þótt gæta verði hófsemdarmarka, rétt eins og við aðra umræðu,“ segir leiðarahöfundur sem segir þeir sem eru á þeirri skoðun, að líta á samkynhneigð sem læknanlega, séu í minnihluta í þjóðfélaginu.
„Og sæta þá jafnvel aðkasti vegna eins og sumir aðrir slíkir,“ skrifar leiðarahöfundur og vísar í mál Snorra Óskarssonar.
Leiðarahöfundur segir aðstöðu samkynhneigðra hafa þó sem betur fer gjörbreyst til hins betra á aðeins örfáum árum og áratugum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013