Rauði krossinn: Átökin í Sýrlandi eru borgarastríð

Sýrlensk yfirvöld neita að hafa notað þungavopn

Alþjóðasamtök Rauða Krossins telja nú átökin í Sýrlandi flokkast undir borgarastríð, sem þýðir að alþjóðleg mannréttindalög gilda um allt landið.

Mat hópsins, sem á höfuðstöðvar í Genf, aðstoðar hópa sem eiga í átökum við að ákvarða hversu mikið og hvernig tegund af afli þeir mega og mega ekki nota. Alþjóðleg mannréttindalög veita hópum sem eiga í átökum réttinn til að nota afl við hæfi til að ná markmiðum sínum. Árásir á borgara, pyndingar á föngum eða morð geta fallist undir stríðsglæpi.

Niðurstaðan kemur í kjölfarið af því að sýrlensk yfirvöld neituðu að hafa notað þungavopn gegn sýrlenskum borgurum í árásinni á Tremseh á fimmtudaginn.

Talsmaður samtakanna sagði í dag að alþjóðleg mannréttindalög gilda nú hvar sem er í Sýrlandi, þar sem eru átök.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.