Nokkur hópur fólks safnaðist saman fyrir utan sendiráð Rússlands í Garðastræti þar sem þau mótmæltu því að þrír af meðlimum rússnesku pönksveitarinnar Pussy Riot voru nýverið úrskurðaðar í áframhaldandi gæsluvarðhald í Moskvu, en konurnar hafa verið í varðhaldi síðan í mars á þessu ári.
Konurnar hafa verið í haldi fyrir þátt sinn í mótmælum gegn Vladimir Pútín, meðal annars með ólöglegum tónleikum í kirkju. Sveitin er skipuð femínistum sem að mótmæla stöðu kvenna í Rússlandi með kraftmiklu pönki, að fyrirmynd Bikini Kill.
Konurnar hafa verið í hungurverkfalli í viku en síðastliðinn miðvikudag var þeim birt 2800 blaðsíðna ákæra og gert að undirbúa vörn sína á tveimur sólarhringum.
„það skiptir mjög miklu máli að aðrar þjóðir sendi þau skilaboð til rússneskra yfirvalda að þetta sé ekki eitthvað sem sé í lagi í alþjóðasamfélaginu. Svo er ég þeirrar skoðunar að heimurinn eigi að vera landamæralaus þannig að ég læt mig varða, og ég vona að það sama eigi við um aðra hér, um málefni annars fólks í öðrum löndum, alveg eins og það sem gerist í okkar eigin bakgarði,“ segir Snærós Sindradóttir.
„Vonandi eru þetta fyrstu samstöðumótmælin af mörgum hér á landi fyrir þær,“ segir Snærós.
Uppfært kl 16:22
Þegar mótmælin höfðu staðið í um hálftíma komu lögreglumenn og höfðu afskipti af mótmælendunum. Mótmælendurnir höfðu náð taki af rússneska fánanum og fjarlægt hann. Mótmælendurnir höfðu þó ekki farið inn á lóð sendiráðsins heldur stóðu þar fyrir utan og klifraði mótmælandinn upp á hlið við sendiráðið. Sérsveitarlögreglumenn fjarlægðu þá mann sem stóð við hliðið og hafði meinað starfsmanni sendiráðsins útgöngu um hlið sendiráðsins. Hann var snúinn niður af lögreglumönnum. Vitni að atburðinum segjast vera í uppnámi eftir framgöngu lögreglu við mótmælin. Að minnsta kosti einn mótmælandi var handtekinn og fjarlægður.
Nánar í myndbandi og myndasafni

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013