Fyrrverandi landgönguliði í Texas var tilbúinn til þess að þykjast vingast við Elric Shawn Millner til þess að komast yfir myndband sem Millner átti af unnustu landgönguliðans þar sem sést þegar að Millner nauðgar konunni.
ABC fréttastofan greinir frá þessu en ekki hefur verið greint frá nöfnum landgönguliðans og konunnar að svo stöddu, en Elrich Shawn Millner hefur verið ákærður fyrir að nauðga konunni. Sönnunargögn málsins þykja sterk en þau byggja á miklu á upplýsingum sem landgönguliðinn safnaði.
Það var í ágúst 2010 sem konan heimsótti Elric Shwan Millner á heimili hans í Texas. Hún segir að Millner hafi veitt sér ótæplega af áfengi, en konan var þá sautján ára gömul. Næsta dag þegar hún vaknaði mundi hún lítið sem ekkert frá kvöldinu áður. Millner bauðst þá til þess að minna hana á atburði kvöldsins og dró þá upp myndband þar sem hann, í slagtogi við annan mann, sést þvinga stúlkuna til kynmaka. Á myndbandinu sést hvernig konan grátbiður þá að hætta.
Hún er augljóslega illa á sig komin sökum ölvunar og grætur og kastar upp auk þess sem hún missir þvag. Mennirnir gera hinsvegar ekkert til þess að aðstoða hana heldur hlæja bara.
Hún treysti sér ekki til þess að kæra mennina og hélt nauðguninni leyndri frá sínum nánustu en nú fyrir skemmstu greindi hún kærasta sínum frá því hvað hafði komið fyrir og sagði honum frá tilvist myndbandsins. Maðurinn, sem er eins og áður kom fram fyrrverandi landgönguliði í bandaríska hernum, var handviss um að ef hann kæmist yfir myndbandið gæti hann komið þess til leiðar að Elric Millner yrði handekinn og ákærður.
Hann vingaðist því við Millner, vann traust hans og fékk hann til að sýna sér myndbandið. Það liggur þó ekki fyrir hvort Millner gaf kærastanum myndbandið, eða afrit af því en engu að síður þá féllst saksóknari á að næg sönnunargögn væru til staðar svo að hægt væri að ákæra í málinu. Saksóknari segist hafa myndbandið undir höndum og það verði lagt fram sem sönnunargögn í málinu. Millner situr nú í gæsluvarðhaldi þangað til réttað verður í málinu.
Nánar í meðfylgjandi myndbandi

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013