Veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarson, sem betur er þekktur sem Siggi Stormur, segir mikil hlýindi vera væntanleg samkvæmt spám.
„Það er ekki að sjá neinar alvöru breytingar. Það hlýnar í dag og á morgun og svo heldur áfram að hlýna um helgina,“ segir hann en rjómablíða er um allt land um þessar mundir.
„Þetta er mjög gott fyrir ferðamennina og unga fólkið kannski,“ segir Siggi og bætir við að það liggi við að veðurfarið á Íslandi sé eins og á Spáni.
En þótt að þetta sé eflaust óskastaða fyrir suma þá er það ekki raunin með alla. „Þetta er að verða grafalvarleg staða sums staðar á landinu, þetta er að verða skuggalega langur þurrkatími, við erum svo vanbúin hérna heima fyrir svona þurrkakafla,“ segir Siggi. Til marks um þetta má nefna stóran sinubruna sem varð á Snæfellsnesi á aðfaranótt þriðjudagsins.
Ógnar búsetuskilyrðum
„Í mörgum sveitum hafa menn treyst á lindarvatn og annað slíkt, og nú þegar að menn horfa á grösin brenna og litla sprettu þá er þetta orðið grafalvarleg staða og ekki lengur sniðugt, þó að þetta sé gott fyrir þann sem að er á ferðalagi,“ segir Siggi enn fremur um málið. „Þetta ógnar búsetuskilyrðum á vissum stöðum á landinu.“
Þvert á við veðurfarið á Íslandi eru miklar rigningar í Norður Evrópu. „Nú vitum við að Bretar eru nánast að fara í sundskýlu á morgnanna út af rigningunum. Og það er rigning út um alla Norður-Evrópu, en Ísland og Miðjarðarhafið eru í þurrki.“
Hann segir greinilegt að veðurfarið sé að þróast hér á landi: „Það eru komin sterk teikn á loft um veðurfarsbreytingarnar hér á Íslandi.“ Víðtækar veðurfarsbreytingar geta haft ýmsa hluti í för með sér og nefnir Siggi í samhengi við það að tíðni eldgosa geta aukist.
„Þegar að jöklar bráðna og farginu - og þar með þrýstingnum - á eldstöðvar léttir, þá eykst tíðni eldgosa. Þetta getur haft margar breytingar í för með sér,“ segir Siggi Stormur veðurfræðingur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013