Þau keppa á Evrópumeistaramóti í sjósundi

Í fyrsta skipti íslenskir keppendur á svo stóru móti

Þrír keppendur halda til Tyrklans fyrir Íslands hönd og keppa á Evrópumeistaramóti ungmenna í sjósundi. Keppnin er um helgina, en fyrir Íslands hönd keppa þau Bára Kristín Björvinsdóttir, 17 ára, úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, Hafþór J. Sigurðarson, 15 ára, úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og Lilja Benediktsdóttir, 15 ára, úr sundfélaginu Ægi. Þjálfari þeirra er Mladen Tepavčević.

Þetta í fyrsta skipti sem íslenskir keppendur taka þátt í svona stóru sjósundsmóti. Hafa þau æft af kappi í Nauthólsvík síðustu vikur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.