Skildi andlega fatlaða dóttur sína eftir fyrir utan bar

Hvorki vill né getur annast hana

Ekki er hægt að ákæra bandaríska móður sem skildi andlega fatlaða dóttur sína eftir fyrir utan bar í bænum Caryville í Bandaríkjunum. Lögreglan í Caryville segir stúlkuna vera nítján ára gamla og ekki hafa verið skipuð forráðamann.

„Eins hræðilegt og það er þá getum við ekkert gert,“ sagði aðstoðarlögreglustjórinn Stephanie Smith við fjölmiðla vestanhafs.

Lögreglan segir móðurina, Evu Cameron, hafa stoppað fyrir utan Big Orange-barinn í Caryville 28. júní síðastliðinn þegar dóttir hennar, Lynn, þurfti að nota klósettið.

Eva skildi dóttur sína eftir og fór aftur heim til sín í Algonquin í Illinois.

„Lynn vissi ekki hvað hún er gömul né hvar hún á heima. Hún gat ekki vísað á neitt símanúmer og var ekki viss á nafni sínu,“ sagði aðstoðarlögreglustjórinn Stephanie Smith.

Eva Cameron sagði við bandaríska dagblaðið The Northwest Herald að hún hefði farið með Lynn til Caryville vegna þess að bærinn er í Tennesse-fylki þar sem heilbrigðisþjónusta er með besta móti og þar fengi Lynn viðeigandi umönnun.

Lögreglan gaf út mynd af dóttur hennar sem endaði með því að hún komst í samband við Evu Cameron sem hefur skrifað undir yfirlýsingu þess efnis að Tennesee-fylki fari nú með forsjá Lynn.

Yfirvöld fóru með Lynn á sjúkrahús þar sem það uppljóstraðist að hún er aðeins fær um að nota 30-40 orð og sögð ófær um að sjá um sig.

Eva Cameron segist ekki geta og né vilja sjá um Lynn. Hún eigi annað fatlað barn og það væri henni ofviða að sjá um þau bæði. Lynn er nú vistuð á stofnun í Roane-sýslu þar sem henni líður vel, að því er aðstoðarlögreglustjórinn Stephanie Smith greinir frá.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.