Sagður hafa svipt sig lífi í dómsal eftir að hafa dæmdur fyrir íkveikju

Lögreglan telur fjárfesti hafa innbyrt blásýru

Lögreglu fann blásýrudós í bíl fyrrverandi fjárfestis á Wall Street sem er talinn hafa svipt sig lífi í dómsal eftir að kviðdómur komst að þeirri að hann hefði gerst sekur um að kveikja í glæsihýsi sínu.

Lögreglustjóri í Maricopa-sýslu, í Bandaríkjunum, sagði fjölskyldu hins 53 ára gamla Michael Marin hafa borist tölvupóstur frá Marin kvöldið eftir að hann lést í dómsalnum 28. júní síðastliðinn. Tölvupóstinn hafði Marin tímasett þannig að hann bærist fjölskyldumeðlimum hans eftir að hann hafði svipt sig lífi.

Í tölvupóstinum gaf hann til kynna hvernig eignir hans ættu að skiptast á meðal fjölskyldunnar.

Eftir að hafa verið sakfelldur fyrir að hafa kveikt í 450 milljóna króna húsi sínu fékk Marin aðsvif og lést í kjölfarið.

Í myndbandi sést hvernig Marin grípur um andlit sitt á meðan dómurinn var kveðinn upp yfir honum. Síðar huldi hann munn sinn með höndunum. Ekki er þó enn búið að staðfesta dánarorsök mannsins þó svo að lögreglan telji að hann hafi innbyrt blásýru.

FOX 10 News - Phoenix, AZ | KSAZ-TV


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.