Segir borgina ráða ferðinni um framtíð flugvallarins

Enginn flugvöllur í Vatnsmýrinni eftir 12 ár samkvæmt skipulagi

Árið 2024 mun flugvöllurinn í Vatnsmýrinni heyra sögunni til ef marka má áætlanir Reykjavíkurborgar. Í fréttatíma Stöðvar 2 var rætt við Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs, sem sagði Reykjavíkurborg ætla að þétta byggð á næstu átján árum og eiga meðal annars sjö þúsund íbúðir að rísa í Vatnsmýrinni.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi að það væri útilokað að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni án samþykkis ríkisins því það á landið að mestu.

Dagur B. Eggertsson minnti Ögmund á í kvöldfréttum Stöðvar 2 að það væri Reykjavíkurborg sem fer með skipulagsvald á svæðinu og það verði ráðherra að virða eins og aðrir.

Eftir fjögur ár verður flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli fækkað og er gert ráð fyrir að hann muni víkja í áföngum á árunum 2016 til 2024.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.