Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15:33 › 11. júlí 2012
Það þykir mikil mildi að ekki fór verr þegar að ungur ökumaður missti stjórn á bíl sínum í Dudley í Bretlandi fyrir skemmstu.
Farþegi bílsins kastaðist út um sóllúgu bifreiðarinnar og endasendist nokkra vegalengd frá bílnum.
Ótrúlega en satt sakaði hann ekki í þessum óförum. Kærasta mannsins var undir stýri og slapp einnig án teljandi áverka.
Óhappið náðist á öryggismyndavél fyrir utan heimili ellilífeyrisþegans, Howard Hamilton, sem var auðvitað mjög brugðið. „Þetta var eins og úr löggumynd. Einhver hefði geta dáið ef þeir hefðu gengið þarna framhjá og orðið fyrir bílnum,“ segir hann við the Daily Telegraph.
Sjón er sögu ríkari eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Hemmi Gunn fallinn frá