Ákærður fyrir að hafa eiginkonu sína hlekkjaða í 10 ár

Beitti hana harkalegu ofbeldi

Bandarískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa eiginkonu sína hlekkjaða í tíu ár. Maðurinn heitir Peter Lizon en lögreglan segir eiginkonu hans hafa leitað til athvarfs með ör á úlnliðum og ökklum eftir hlekkina. Þá var hún með brunasár eftir að maðurinn hafði slegið hana með steikingarpönnu og voru fætur hennar illa farnir eftir að Lizon hafði brotið þá með traktorsskóflu.

Hinn 37 ára gamli Lizon er sagður hafa neytt 43 ára gamla eiginkonu sína til að fæða barn á meðan hún var hlekkjuð. Þá á eiginkona að hafa orðið ólétt öðru sinni en misst fóstrið. Bandaríska sjónvarpsstöðin WSAZ 3 greinir frá þessu en þar er haft eftir lögfræðingi Lizons að ásakanir á hendur honum séu rangar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.