„Þetta er merkilegur dómur og mikilvægur að því leyti að við munum að sjálfsögðu tala tillit til hans. Það hafa Íslendingar jafnan gert, það eru fordæmi fyrir því að svo hafi verið,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins en Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi íslenska ríkið til að greiða tveimur blaðakonum tíu milljónir króna. Taldi dómurinn íslenska ríkið hafa brotið gegn tjáningarfrelsisákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu.
Ögmundur sagði stjórnvöld þurfa að horfa til löggjafarinnar auk þess sem réttarkerfið þurfi að íhuga það sem kallað er andi laganna. Hann benti þó að fjölmiðlar þurfi að íhuga hvaða afleiðingar það hafi fyrir þá.
„Þetta mál snýr ekki bara að réttarkerfinu, þetta snýr líka að fjölmiðlunum og þeim skyldum sem þeim ber að axla. Ef við ætlum að rýmka heimildir fréttamanna og fjölmiðla hvað varðar nafnleynd og meðferð upplýsinga sem þeir fá í hendur, þá þurfum við að geta treyst fjölmiðlunum," sagði Ögmundur við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013