Ætla að bjóða ljósmyndaranum í flug

Upplýsingafulltrúi WOW Air: „Okkur finnst þetta ömurlegt“

„Okkur finnst þetta ömurlegt,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW Air, um undarlega niðurstöðu í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Air sem DV greindi frá fyrir skemmstu.

„Við vissum ekki einu sinni af því að sú sem sendi inn myndina hefði ekki tekið hana sjálf. En við ætlum að bjóða ljósmyndaranum í flug á einhvern áfangastaða okkar í Evrópu.“

Greint var frá úrslitum ljósmyndakeppni Vísis og WOW Air í dag og má sjá verðlaunamyndina í flokknum „fólk“ hér að ofan. Ljósmyndarinn Eyþór Árnason, starfsmaður DV, tók þessa mynd fyrir skömmu en sendi hana þó ekki í keppnina.

Á vefsíðu Vísis kom fram að myndin væri höfundarverk Söndru Mjallar Ólafsdóttur. Þar var myndinni gefið nafnið „Segðu SÍS“ en svo skemmtilega vill til að Eyþór rekur einmitt ljósmyndastofu sem heitir sama nafni.

DV vill nýta tækifærið og óska Eyþóri til hamingju með sigurinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.