Bræðurnir Davíð Bergmann Davíðsson og Arnar Snær Davíðsson eru sárir yfir því að heyra Guðbjart Hannesson velferðarráðherra tala um að skipulagsleysi hafi átt þátt í því að faðir þeirra, Davíð Davíðsson, 79 ára, leið ótrúlegar kvalir í tæplega tvo ár án þess að fá rétta greiningu hjá læknum. Eftir að læknar höfðu upphaflega talið að stöðugir verkir í fæti hans væru vegna trosnaðrar hásinar, kom í ljós í mars á þessu ári að hann var með æxli á stærð við páskaegg númer þrjú í fætinum. Um leið og það uppgötvaðist var ekki annað í stöðunni en að taka fótinn af. Þar áður hafði hann margsinnis verið sendur heim af spítalanum með lyfseðil fyrir sterkum verkjalyfjum. Þeir segja söguna af pabba sínum vera skýrt dæmi um að heilbrigðiskerfið sé komið út fyrir ystu þolmörk. Of fáliðað sé á spítölum og fólk vinni undir allt of miklu álagi.
Eins og að stíga á glerbrot
Davíð, sem nú dvelur á sjúkrahóteli, byrjaði að kenna sér meins í hælnum í byrjun árs 2011. Þeir segja að hann hafi lýst verkjum sínum eins og það væri eitthvað undir hælnum í skónum hans. Svipað og að hann væri sífellt að stíga á stein eða glerbrot. Æxlið hafi því líklega aðeins verið í hælnum á þeim tíma.
„Pabbi var búinn að vera veikur í marga mánuði og náði sér aldrei upp úr einhverri umgangspest. Hann er kall sem hefur unnið með hörðum höndum allt sitt líf. Hann hefur verið til sjós og skilað sínu til samfélagsins. Hann var aldrei veikur og hefur alltaf verið til staðar, alla tíð. Svo veikist gamli maðurinn af umgangspest. Honum var alltaf að slá niður,“ segir Davíð Bergmann sonur hans við DV.
Nánar er rætt við Davíð Bergmann Davíðsson og Arnar Snæ Davíðsson í DV í dag


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013