Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
19:37 › 1. júlí 2012
Lögreglunni var á sunnudagsmorgun tilkynnt um mjög svo rásandi aksturslag bifreiðar í austurbæ Reykjavíkur. skömmu síðar fann lögreglan bifreiðina og ræddi við ökumanninn sem ekki reyndist vera með bílpróf.
Í tilkynningu frá lögreglunni vegna málsins kemur fram að maðurinn hafi verið sýnilega mjög ölvaður og óviðræðuhæfur af þeim sökum. Hann var þá færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu en hann var einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Að lokinni sýnatöku var hann settur í fangaklefa þar sem honum var leyft að sofa úr sér mestu áfengisvímuna.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013