Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
20:25 › 1. júlí 2012
Morgunmaturinn á íslenska kaffihúsið Laundromat Café í Frederiksberg í Danmörku var á dögunum valinn besti morgunmaturinn í Kaupmannahöfn. Það voru lesendur Alt om København, eða Allt um Kaupmannahöfn, sem völdu staðinn.
Þetta er í tólfta skiptið sem tímaritið lætur lesendur sína velja besta morgunmatinn í Kaupmannahöfn. Í umsögn blaðsins um Laundromat segir að mikið úrval sé á matseðlinum, að börn séu sérstaklega velkomin og að hægt sé að þvo af sér, en staðurinn býður upp á þvottaaðstöðu.

Hemmi Gunn fallinn frá