Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:42 › 1. júlí 2012
Hjón í San Francisco festu kaup á lúxusvillu fyrir 530 milljónir króna, til þess eins að láta rífa hana þar sem hún hindraði útsýni þeirra. Hjónin, sem greinilega eiga fyrir salti í grautinn, búa sjálf í lúxusvillu sem metin er á 2,4 milljarða króna skammt frá. Það hafði pirrað þau að geta ekki horft á skýjakljúfa borgarinnar og hina frægu Golden Gate-brú út um stofugluggann.
Um leið og kaupin voru frágenginn, fengu bankamaðurinn Clark Winslow og kona hans leyfi til þess að láta rífa villuna. Þegar húsið var farið létu þau planta runnum, trjám og öðrum gróðri á lóðina og tengdu við garðinn sinn. Belvedere, bærinn sem hjónin búa í, er griðastaður milljarðamæringa, en laun á hvern íbúa þar eru hærri en í nokkrum öðrum bæ í Bandaríkjunum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013