Japanir aftur farnir að nota kjarnorkuver

Kveikt á fyrsta kjarnaofninum í dag

Japanir kveiktu í dag á kjarnaofnum í fyrsta skipti frá því að alvarlegt kjarnorkuslys varð í Dai-ichi kjarnorkuverinu í Fukushima á síðasta ári. Kansai Electric Power Co kveiktu á ofni í Ohi-kjarnorkuverinu og munu kveikja á ofni númer fjögur síðar í mánuðinum. Þúsundir einstaklinga mótmæltu á götum úti og fyrir framan Ohi-verið þegar kveikt var á ofninum, samkvæmt Reuters.

Lítil sem enginn kjarnorkurafmagnsframleiðsla hefur verið í landinu frá því að slysið átti sér stað í kjölfar mikilla jarðskjálfta. Orkuframleiðsla með kjarnorkuverum er afar umdeild í Japan og telja hátt í 70 prósent þjóðarinnar að hætta eigi slíkri orkuframleiðslu til frambúðar. Japanir horfa engu að síður fram á raforkuskort á næstu mánuðum en fyrir kjarnorkuslysið á síðasta ári var 30 prósent af allri orku í Japan framleidd í kjarnorkuverum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.