Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
12:46 › 1. júlí 2012
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason, einn dyggasti stuðningsmaður framboðs Þóru Arnórsdóttur, sem laut í gras fyrir Ólafi Ragnari í kosningum gærdagsins, segist þakklátur fyrir hugrekki Þóru. Hann segir nánar tiltekið á fésbókarsíðu sinni:
„Við ættum ekki að skilja við framboð Þóru með súrt a vör. Árangur hennar er umtalsverður. Hún fékk nánast sama prósentufylgi og Vigdís fékk á sínum tíma. Nú var "kallinn" hinsvegar einn um rest. Kannski er þetta bara hámarksfylgi sem kvennaframboð af þessu túni þjóðfélagsins getur fengið? Þökkum Þóru hugrekkið og verum glöð.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013