„Ég er bara í bið, fer líklegast ekki fyrr en í september,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson sem bíður þess að fara í handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. Íslendingar söfnuðu fjörtíu milljónum fyrir Guðmund Felix en aðgerðin ein og sér kostar um 20 milljónir, auk þess kemur hann til með að þurfa að búa þar allavega í tvö ár eftir aðgerðina. Guðmundur Felix missti handleggina við öxl í vinnuslysi þegar hann vann við háspennulínu árið 1998.
Veit ekki hvenær kallið kemur
„Þetta tafðist vegna þess að maður sem átti að vera á undan mér í aðgerð, Ítali, átti að fara í aðgerð í janúar en það tafðist fram í maí vegna einhverra tæknilegra mála. Þá var ákveðið, þar sem það er svo stór hópur sem stendur að þessu, að taka sumarleyfi áður en það yrði byrjað á þessu. Hann fer svo í september og strax og hann er búinn þá fer ég á biðlista.“
Guðmundur mun þurfa að flytjast út um leið og hann er kominn á biðlista því hann veit aldrei hvenær kallið kemur. „Ég veit ekkert hvað biðin verður löng, hún getur verið frá einum degi og upp í tvö ár. Ég þarf bara að vera tilbúinn þegar þeir kalla, þetta veltur allt á því hvenær rétti gjafinn finnst. Þannig maður fer úr einni bið í aðra.“
Vanur biðinni
Guðmundur Felix mun þurfa að búa úti í allavega tvö ár í kjölfar aðgerðarinnar og þarf á hjálp að halda fyrir hana. Hann fær góðan stuðning fjölskyldu og vina og er þakklátur fyrir það. „Ég mun þurfa hjálp áður en ég fer í aðgerðina. Yngri dóttir mín og mamma ætla að flytja með mér og pabbi líka en hann verður með annan fótinn heima á Íslandi.“
Hann segir að þó að biðin sé löng þá sér hún þess virði. „Þetta er auðvitað búið að taka á en ég er auðvitað orðinn vanur biðinni. Ég er búinn að vera að vesenast í þessu í mörg ár. Núna er maður allavega kominn með svar, peninginn og ég er á leiðinni þannig að ég verð bara að vera þolinmóður. Ég fór úr einni bið í aðra,“ segir hann.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013