Flóttaplan Katie Holmes

Sögð hafa óttast um dóttur sína vegna Vísindakirkjunnar

Leikkonan Katie Holmes útbjó flóttaáætlun áður en hún sótti um skilnað frá Tom Cruise. Frá þessu greina vefmiðlar vestanhafs. Samkvæmt NYdaily news leigði Holmes íbúð í New York áður en brestir tóku að myndast í áður ástríku sambandi þeirra. Þessar ráðstafanir gerði Holmes á meðan Tom var í mörgþúsund kílómetra fjarlægð – á Íslandi.

Heimildir herma að skilnaður Hollywood-parsins eigi rætur að rekja til trúar Tom Cruise, en hann er háttskrifaður meðlimur Vísindakirkjunnar. Katie Holmes mun hafa haft áhyggjur af því hvaða áhrif gífurleg tryggð Tom við Vísindakirkjuna gæti haft á dóttur þeirra hjóna, Suri.

Fyrir aðeins tveimur vikum síðan var parið, ásamt dóttur þeirra, myndað á veitingastaðnum Sushi Samba þar sem, að því er virtist þá, hamingjusama fjölskyldan gæddi sér á gómsætum eldfjalla sushi-bitum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.