Sigrún er í hópi 180 utangarðsmanna sem ráfa um götur Reykjavíkurborgar. Hún er þó ekki heimilislaus í þeim skilningi því í fjögur ár hefur hún búið í húsum við Fiskislóð sem borgin á og ætluð eru heimilislausu fólki. Þar bjó hún fyrst ásamt kærasta sínum sem hún er núna hætt með.
„Við erum enn bestu vinir en við gátum ekki verið saman. Við vorum næstum búin að drepa hvort annað, við vorum alltaf að slást,“ segir hún rámri röddu. Sigrún er orðin mikið veik og drykkjan hefur sett sitt mark á hana. „Ætli ég fari ekki bara að drepast,“ segir hún alvarleg. „Ég er orðin þreytt á þessu.“
Fyrir um mánuði var hún bitin af hundi í miðbænum. „Síðan þá hef ég mest haldið mig heima og aðeins kíkt hingað. Ég er svo skíthrædd við hunda eftir þetta og ég sem er svo mikill dýravinur.“
Hundurinn réðst að henni og beit hana í höndina. Hann beit hana djúpt og það þurfti að sauma. „Þetta var ekkert smá,“ segir hún og sýnir handlegginn þar sem sárið sést. „Það þurfti að sauma og svo fékk ég sprautu. Ég skil ekkert af hverju hann réðst á mig.“ Sigrún hefur reynt að losa sig við áfengið en gengið illa. „Það tekur bara alltaf það sama við.“
Um 180 utangarðsfólk er í Reykjavík. Sögur þeirra eru jafn misjafnar og þær eru margar en flest á fólkið það sameiginlegt að vera ofurselt áfengisbölinu. Í helgarblaði DV er að finna úttekt á lífi utangarðsfólks í Reykjavík.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum