Danski faðirinn fer með dætur sínar frá landinu í dag

Hafa auglýst eftir fólki til þess að taka myndir af stelpunum án þeirra vitneskju í flugvélinni

Þrjár dætur Hjördísar Svan og Kim Laursen munu fara með föður sínum til Danmerkur síðar í dag. Foreldrarnir hafa staðið í harðri forræðisdeilu síðan þau skildu.

Hjördís fór með börnin frá Danmörku til Íslands eftir að þau skildu í trássi við lög þar í landi þar sem foreldrarnir voru með sameiginlegt forræði. Honum hafði verið úrskurðuð umgengni við börnin en hún virti það að vettugi og fór heim með stúlkurnar til Íslands.

Hjördís hefur sagt í viðtölum að hún hafi gert það til þess að vernda þær fyrir föður sínum sem hún hefur sakað um að hafa beitt sig og börnin andlegu og líkamlegu ofbeldi.

Dómkvaddur sálfræðingur sagði fyrir dómi að ekkert benti til þess að börnin hefðu verið beittar ofbeldi eða orðið vitni að því. Sagði hann einnig fyrir dómi að það væri mikilvægt að börnin yrðu losuð frá því að taka afstöðu með móður á móti föður. Hann var afdráttarlaus í niðurstöðu sinni fyrir dómi að hann hafi ekki orðið var við neitt sem benti til þess að telpunum gæti stafað hætta af föður sínum.

DV sagði frá því á föstudag að fjölmennt lögreglulið hefði fjarlægt stúlkurnar af heimili móður sinnar á föstudag. Þá var þeim komið fyrir hjá Barnaverndaryfirvöldum þar til faðir þeirra kæmi að sækja þær.

Faðir þeirra kom til landsins seint í gærkvöldi og var tekið á móti honum af íslenskum yfirvöldum. Fjölskylda móðurinnar er mjög ósátt við meðferð málsins og telur brotið á rétti barnanna. Móðirin heldur því fram að faðirinn sé ofbeldismaður sem hafi beitt sig og börnin andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hefur móðirin meðal annars á Facebook stuðningssíðu sinni myndir af áverkum á stúlkunum sem hún segir að faðirinn hafa veitt þeim. Þar hefur einnig verið auglýst eftir fólki sem er á leið til Danmerkur seinni partinn í dag til þess að taka myndir af stelpunum í flugvélinni án þeirra vitneskju.

Héraðsdómur Austurlands dæmdi í málinu í febrúar í fyrra og komst að þeirra niðurstöðu að virða ætti forræðisúrskurð danskra yfirvalda sem höfðu komist að þeirri niðurstöðu að forræðið skyldi vera sameiginlegt. Með því að taka börnin af heimili móður þeirra var verið að fylgja dómsuppskurði Héraðsdóms Austurlands. Í niðurstöðu dómsins var tekið fram að í samræmi við dómaframkvæmd hefur Hjördís þann kost að aflétta sjálf hinu ólögmæta ástandi og fara með börnin til Danmerkur þar sem hún getur séð um þau eins og hún gerði áður en hún fór með þau til Íslands og kveðið var á í úrskurði hins danska dómsstóls.

Hjördís hefur hins vegar sagt frá því að þau hafi búið við óviðunandi aðstæður úti í Danmörku og þau vilji búa á Íslandi, sem sé heimaland þeirra.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.