16 ára með hnífa og hnúajárn í herberginu sínu

Móðir gagnrýnir Barnavernd harðlega fyrir úrræðaleysi

„Ég er stanslaust búin að vera að pressa og biðja um einhver úrræði fyrir hann en svörin sem ég fær eru bara: „Því miður, það eru engin úrræði til“. Þetta er barn með margar greiningar og hann er bara að flækjast,“ segir móðir 16 ára drengs sem hefur verið greindur með ofvirkni og athyglisbrest, mótþróaþrjóskuröskun, málskilningsröskun, hegðunarröskun og er tveimur árum á eftir í þroska. Móðirin kemur alls staðar að lokuðum dyrum í kerfinu og drengurinn fær að hennar mati ekki þá aðstoð sem hann þarf til að geta fótað sig í lífinu.

Hann á við mikil hegðunarvandamál að stríða, en hefur hvorki verið í neyslu að ráði né afbrotum. Móðirin vill gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að sonur hennar leiðist út í heim fíkniefna og glæpa, en hann er kominn í slæman félagsskap.

Hún gagnrýnir Barnavernd harðlega fyrir úrræðaleysi gagnvart börnum og unglingum sem eru að kljást við svipuð vandamál og sonur hennar.

Með þrautseigju og elju hefur henni tvisvar tekist að koma drengnum inn á Stuðla þar sem starfsfólkið fékk hann til að viðurkenna að hann væri að glíma við vandamál. Það náðist töluverður árangur með honum í meðferðinni á Stuðlum en þar sem eftirfylgnina vantar þá fór sonur hennar fljótlega aftur í sama farið eftir að hann kom út í lífið á nýjan leik.

„Það hefur sýnt sig á Stuðlum að það er hægt að vinna með hann, en ég get það ekki sjálf. Ég hef ekki sérfræðiþekkingu eða menntun til þess. Maður er endalaust að finna vopn í herberginu hans, eins og til dæmis hnífa, hnúajárn og einnig kúbein.“

Drengurinn á það til að hverfa í viku og skila sér svo heim án þess að hafa sofið í marga sólarhringa. Hann er bara að þvælast um og móðirin veit í raun ekkert hvað hann aðhefst á meðan.

Lesa má ítarlegt viðtal við móður drengsins í helgarblaði DV


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.