Milljónir vegna kynsjúkdóms

Dómurinn komst að því að atvikið væri 75 prósent manninum að kenna

Bandarísk kona á fimmtugsaldri hefur unnið mál gegn 69 ára gömlum karlmanni eftir að maðurinn smitaði konuna af kynsjúkdómi. Kviðdómur í máli konunnar dæmdi manninn til að greiða henni 900.000 dali, jafnvirði 117 milljóna króna, í skaðabætur. Maðurinn smitaði konuna eftir fjórða stefnumótið sem þau áttu. Konan hélt því fram að maðurinn hafi sagst ætla að nota verjur en að hann hafi ekki gert það og þess vegna smitað konuna. Bandaríska blaðið Oregonian greinir frá þessu.

Dómurinn komst að því að atvikið væri 75 prósent manninum að kenna. „Okkur fannst að hann hefði átt að segja henni frá þessu – honum bar skylda til þess,“ sagði einn kviðdómaranna í samtali við blaðið. Málsóknir vegna smitunar kynsjúkdóma eru afar fátíðar þar sem sérstaklega erfitt er að sanna að brot hafi átt sér stað. Í þessu tilfelli var það hins vegar svo að konan gat sýnt fram á að hún hafi verið ósmituð áður en hún svaf hjá manninum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.