Gríski þingmaðurinn Ilias Kasidiaris, sem situr á þingi fyrir Gullna dögun, flokk nýnasista, hefur hótað að kæra tvær vinstri sinnaðar þingkonur en hann segir að þær hafi ögrað sér í sjónvarpsþætti á dögunum. Kasidiaris sló aðra konuna í andlitið og skvetti vatni framan í hina.
Þingmaðurinn hefur verið í felum síðan á fimmtudag en hann birti yfirlýsingu á Facebook síðu sinni í dag og sagðist sjá eftir því að hafa látið flækja sér í mál sem gæti skaðað flokk hans í kosningunum næsta sunnudag. Hann segir að það hafi verið ætlun andstæðinga sinna að ögra sér til að kalla fram viðbrögð, sem kæmu honum og flokknum illa.
Myndskeiðið þar sem Kasidiaris slær þingmanninn Liönu Kannelli í Kommúnistaflokknum í þrígang hefur farið eins og eldur um sinu í grískum miðlum.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi