„Vissum að við fengjum ekki að vera í friði,“ segir formaður LÍÚ

Aðgerðum LÍÚ lokið og flotinn haldinn til veiða

„Ég átti alveg von á því að það yrði einhver skoðanaágreiningur hér á Austurvelli,“ sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, við DV, aðspurður hvernig samstöðufundur LÍÚ á Austurvelli legðist í hann. „Við vissum það nú að við fengjum ekki að vera í friði til þess að flytja okkar ræður,“ sagði hann um viðtökur fundarmanna við ræðu hans. Adolf mátti sitja undir viðstöðulausum köllum, púi og hávaða á meðan hann flutti ræðu sína auk þess sem gengið var með blaktandi flagg, rautt á lit fram og aftur fyrir sviðið og myndavélar. Hann sagði ákveðna aðila mótmæla hávært án þess að hlusta á rök þeirra sem væru ósammála.

Lesendur DV geta lesið umfjöllun blaðsins með því að smella á meira hér að neðan.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.