Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
23:42 › 8. júní 2012
Sjötíu og þriggja ára gömul fyrrum skrifstofukona frá Nepal, setti heimsmet á dögunum þegar hún klifraði upp á tind Mount Everest. Tamae Watanabe er nú elsta kona í heimi sem hefur náð upp á þennan hæsta tind veraldar.
Elsti maðurinn sem komist hefur upp á tindinn var sjötíu og sex ára Nepali en hann náði þeim áfanga árið 2008. Watanabe er vanur göngumaður en hún fór ásamt fjórum öðrum göngumönnum upp á fjallið sem er 8,850 metrar að hæð. Ferðin gekk eins og í sögu að hennar sögn og var hún í toppformi þegar hún kom til baka.

Hemmi Gunn fallinn frá