Kona féll í sjóinn

Hjón í veiðiferð komust í hann krappan

Hjón á fimmtugsaldri komust í hann krappan í veiðiferð í Keflavíkurhöfn í dag. Konan kastaði út en festi spúninn í þara á bryggjunni. Þegar hún hallaði sér fram af bryggjunni til að kíkja vildi svo óheppilega til að hún datt í sjóinn.

Maður konunnar og sonur náðu að toga konuna upp úr kafi og héldu henni við bryggjuna þar til hjálp barst. Konan var nokkuð ölvuð þegar atvikið átti sér stað. RÚV greinir frá.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum varð konunni ekki meint af volkinu en hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar enda orðið kalt eftir veruna í sjónum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.