Fjölskylda látins tveggja ára drengs í Brasilíu segir hann hafa vaknað upp í eigin jarðarför og beðið pabba sinn um vatn. Hann hafði fengið lungnabólgu og hætt að anda þegar hann var á spítala í meðferð útaf veikindum sínum. Hann var svo úrskurðaður látinn kl 19:40 á föstudag og foreldrar fengu lík hans afhent í plastpoka.
Haldin var líkvaka alla nóttina með ættingjum og átti að jarðsyngja Kelvin daginn eftir. Drengurinn lá í opinni kistu og um klukkustund áður en jarðaförin fór fram segjast ættingjarnir hafa séð Kelvin setjast upp og segja „Pabbi, má ég fá vatn að drekka?“
Viðstaddir fóru að öskra og trúðu ekki sínum eigin augum. Kelvin litli lagðist aftur niður, nákvæmlega eins og hann var, hann var dáinn aftur. Faðir drengsins, Antonio Santos, dreif sig að sjálfsögðu með drenginn strax upp á spítala aftur og læknarnir skoðuðu hann og fundu ekkert lífsmark með drengnum. „Þeir fullvissuðu mig um að Kelvin væri látinn en gáfu mér enga skýringu á því sem við höfðum bæði séð og heyrt.“ sagði Antonio
Fjölskylda drengsins ákvað að fresta jarðarförinni um eina klukkustund og sjá hvort Kelvin myndi vakna aftur en hann gerði það ekki og var hann jarðaður kl 17 á laugardaginn.
Antonio er sannfærður um að þarna hafi orðið læknamistök. „Kannski skoðuðu læknarnir hann ekki nógu vel, dáið fólk rís ekki bara upp og talar.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum