Fengu áfengi fyrir að mótmæla

„Maður verður bara að vita hvenær maður á að þegja“

Starfsmönnum í frystihúsi Nesfisks ehf. Í Garði á Reykjanesinu var boðið upp á frítt áfengi tækju þeir þátt í mótmælum LÍÚ. Þá bauð fyrirtækið einnig upp á fríar rútuferðir til Reykjavíkur fyrir þá sem kusu að taka þátt í mótmælunum. Þeim starfsmönnum sem ekki þáðu boð fyrirtækisins var gert að vinna á meðan hinir fengu frí. Heimildir DV herma að á meðal þeirra sem þáðu áfengið hafi verið fólk undir löglegum áfengisaldri. Fyrir því er a.m.k. eitt staðfest tilfelli. Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, neitar að taka allan vafa um það hvort starfsfólk hafi verið verðlaunað með áfengi.

Áfengi í boði

Það var á miðvikudaginn sem auglýsingar voru settar upp í frystihúsi Nesfisks, en á þeim voru rútuferðirnar á „samstöðufund“ LÍÚ auglýstar. Daginn eftir, eða sama dag og fundurinn var haldinn, fór síðan að kvissast út að frítt áfengi yrði í boði fyrir þá sem tækju þátt í mótmælunum. Heimildir DV herma að keypt hafi verið mikið magn af bjór sem starfsfólk fékk að gæða sér á fyrir rútuferðina og í rútunum sjálfum. Þeir sem kusu ekki að fara ekki til Reykjavíkur gafst ekki kostur á því að fá frí úr vinnu eða drekka áfengi á kostnað fyrirtækisins.

Þeir starfsmenn frystihússins sem DV hefur rætt við vildu lítið tjá sig um málið. Einn þeirra sagði þó að flestir hefðu kosið að taka þátt enda frí í vinnu og frítt áfengi í boði. Aðspurður um það hvort einhverjar óánægjuraddir hefðu heyrst innan frystihússins sagði hann: „Nei maður verður bara að vita hvenær maður á að þegja.“

„Á launum með bjór í boði Nesfisks“

Eins og fyrr segir var fólk undir lögleglum áfengisaldri á meðal þeirra sem þáðu áfengi í boði fyrirtækisins. Á Facebook síðu eins starfsmanns sem er nítján ára gamall mátti til að mynda sjá mynd af bjór og skilaboð um að hann væri að mótmæla nýja kvótakerfinu á launum og með bjór í boði fyrirtæksins: „Mótmæla nýju kvóta kerfinu. Á launum og með bjór í boði Nesfisks“

Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, sagði einhvern hluta starfsfólks fyrirtækisins hafa mætt á mótmælin. Hann staðfestir að fyrirtækið hafi boðið upp á rútuferðir frá Garði fyrir starfsmenn en þvertekur þó fyrir að mótmælendur fyrirtækisins hafi þegið laun fyrir mætingu á kvótafundinn. „Fólkið er ekki á launum þetta er bara alrangt,“ svarar Bergþór spurningu DV um hvort rétt sé að starfsfólk hafi þegið laun og frítt áfengi frá fyrirtækinu fyrir mætingu á Austurvöll.

„Ég veit ekki hvaða umræðu þú ert í. Fólkið var ekki á launum í þessu ferðalagi,“ segir Bergþór en neitar þó að taka af um allan vafa hvort starfsfólk Nesfisks sem sá sér fært að mótmæla fyrir utan Alþingi hafi verið verðlaunað með áfengi. „Eigum við ekki bara að heyrast á morgun vinur. Þá liggur betur á þér,“ er meðal þess sem Bergþór svarar ítrekuðum spurningum um hvort starfsfólki hafi boðist áfengi fyrir mótmælin. „Þetta er rangt með launin,“ sagði Bergþór í lok símtalsins.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.