„Ég var að fikta við sofandi smástelpur“

Barnaníðingur tjáir sig um brot sín í símaviðtali

„Ég var að fikta við sofandi smástelpur, það er alveg satt, og fyrir það er ég búinn að taka út minn dóm og hljóta mína refsingu.“ Þetta er á meðal þess sem kemur fram í símaviðtali Útvarps sögu við dæmdan barnaníðing sem í fyrra hafði aðgang að fósturheimili fyrir börn. Í viðtalinu segir hann meðal annars að hann sé pedófíll og það sé jafn heimskulegt að ætla að koma í veg fyrir barnagirnd pedófíla eins og þegar reynt sé að „afhomma.“

Nafngreindur

Útvarp Saga nafngreinir manninn á vef sínum í dag en hann hefur skipt um nafn, hét Roy Svanur Shannon, en heitir í dag Gunnar Jakobsson. Mikið var fjallað um mál Gunnars í fjölmiðlum í lok maí þegar upp komst að hann hafði í fyrrasumar aðgang að fósturheimili þar sem börn eru vistuð af hálfu barnaverndaryfirvalda. Nágrannar komust að því fyrir tilviljun hver maðurinn er en hann breytti um nafn eftir að hann lauk afplánun.

Í frétt Útvarps Sögu er meðal annars sagt frá því þegar tvær ungar stúlkur sáu sig knúnar til þess að flýja manninn. Hann er búsettur á Stokkseyri og heldur til í húsnæði sem er í eigu dvalarheimilisins Kumbaravogs. Gunnar sagði í samtali við Útvarp Sögu að ásakanir sem á hann eru bornar um að hann hafi áreitt og elt stúlkur á Stokkseyri eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Í símaviðtali við Útvarp Sögu sagði Gunnar meðal annars: „Það hefur aldrei nokkurn tímann, nokkurt barn eða unglingur og reyndar ekki kona heldur, aldrei sagt við mig, stoppaðu, hættu, ekki gera þetta, má ekki gera þetta eða nokkuð í þá áttina, aldrei nokkurn tímann.“

Yrði helmingi verra

Þá sagði hann einnig þetta: „Þetta mál er bara alveg út í hött. Og það er undarlegt að ég var aldrei grunaður um neitt annað en þetta, að vera að fikta við sofandi smástelpur, ég gerði það, ég er pedófíll, því verður ekkert breytt og er álíka gáfulegt eins og þegar vesalings Gunnar í krossinum ætlaði að fara að afhomma. Það hefur allt þjóðfélagið annaðhvort grátið eða hlegið að vitleysunni í honum þegar hann ætlaði að fara að afhomma hommana. Það er bara vitleysa og út í hött og það er nákvæmlega sama með pedófílana. Ég myndi aldrei nokkurn tímann gera neitt sem gæti orðið til til þess að ég færi þarna inn aftur vegna þess að ég veit nákvæmlega hvað biði mín, og sjálfsagt helmingi verra ef ég færi þarna inn aftur vegna þess að svona lagað magnast alltaf upp.“

Með barnaklám í fórum sínum

Gunnar var í apríl árið 1997 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex barnungum stúlkum og var það þyngsti dómur sem hafði fallið í barnaníðingsmáli hérlendis á þeim tíma en hann var einnig fundinn sekur um að hafa gífurlegt magn af barnaklámi undir höndum. Þá var Gunnar sakfelldur fyrir að hafa framleitt og deilt barnaklámi á vefnum en meðal þess sem kemur fram í dómi Héraðsdómi Norðurlands eystra er að Gunnar hafði tekið sum brota sinna upp á myndbandsupptökuvél.

Við rannsókn málsins var eldra mál gegn Gunnari tekið upp en það mál má rekja til ársins 1991 en þá átti Gunnar að hafa áreitt barnungar stúlkur kynferðislega í sumarhúsi í Húsafelli. Það mál var kært árið 1992 en var fellt niður 1994. Eftir að hafa setið af sér dóminn breytti maðurinn sem þá hét Roy Svanur Shannon nafninu sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til Danmerkur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.