Nýr íslenskur tölvuleikur á markað

Ókeypis fyrir alla á á Íslandi

Samsærið, fyrsti íslenski tölvuleikur sinnar tegundar, er kominn út að því er fram kemur í tilkynningu frá dreifingaraðilanum Gamatic ehf. Leikurinn sem hannaður er fyrir PC-tölvur fær dreifingu út um allan heim en um er að ræða ævintýraleik í ætt við svokallaða „hidden object“ leiki. Í tilkynningu frá Gamatic segir að leikurinn verði í kynningarskyni ókeypis fyrir alla á Íslandi sem hafa Facebook aðgang.

Í leiknum þarft þú að afla sönnunargagna til að sýna fram á að þú framdir ekki þau afbrot sem einhver hefur reynt að koma á þig sök fyrir. Samsærið eða Them: The Summoning eins og hann heitir á ensku, mun koma út fyrir farsíma og spjaldtölvur innan skamms. Leikurinn er seldur í verslunum í Bandaríkjunum og í verslunum á öllum stærstu markaðssvæðum Evrópu.

Áhugasamir geta sótt leikinn á eftirfarandi slóð: www.gamatic.com


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.