Seldu sér eignir Atlanta út úr gjaldþrota félagi

Flugfélagið Atlanta í hendur sömu eigenda eftir fjárhagslega endurskipulagningu

Eigendur flugfélagsins Atlanta keyptu skuldir og eignir móðurfélags þess, AAI Holding ehf., af kröfuhöfum þess í apríl í fyrra og færðu yfir í annað eignarhaldsfélag, Haru Holding ehf. AAI Holding hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta og er skiptum á félaginu lokið. Kröfuhafar félagsins afskrifuðu rúmlega 1.200 milljónir króna vegna gjaldþrots félagsins. Athygli vekur að félögin tvö, AAI Holding og Haru Holding, eru í eigu sömu einstaklinga.

Atlanta rekur sautján þotur af gerðinni Boeing og Airbus sem notaðar eru til farþega- og fraktflutninga og eru þoturnar leigðar út til annarra fyrirtækja erlendis. Flugfélagið þykir vera afar gott fyrirtæki þó ekki sé mikið um það rætt hér á landi þar sem starfsemi þess er aðallega erlendis. Atlanta skilaði til að mynda 460 milljóna króna, 4 milljóna dollara, hagnaði árið 2010.

Að sögn Guðmundínu Ragnarsdóttur, skiptastjóra AAI Holding ehf., var eini kröfuhafi AAI Holding ehf. sama félag og keypti skuldir þess af þriðju aðilum í fyrra, áðurnefnt Haru Holding. Staðan er því sú að að eigendur Atlanta keyptu upp skuldir móðurfélags þess fyrir tiltekna upphæð en svo var hluti af kröfum þess, rúmlega 1.200 milljónir króna, afskrifaður við gjaldþrotameðferð fyrrverandi móðurfélags Atlanta sem þeir áttu og stýrðu sjálfir. „Þetta er eini kröfuhafinn í búinu,“ segir Guðmundína.

Eigendur AAI Holding ehf. og Haru Holding ehf. eru Hannes Hilmarsson, forstjóri Atlanta, Helgi Hrafn Hilmarsson, Stefán Eyjólfsson og Geir Valur Ágústsson.

Allt um málið í DV í dag. Áskrifendur lesa meira hér fyrir neðan:

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.