Samherjamenn neita að opna iPad-tölvur

Grunur um frekari lögbrot

Forráðamenn útgerðarfyrirtækisins Samherja neita að afhenda lykilorð póstforrita á tveimur iPad-spjaldtölvum sem Seðlabanki Íslands hefur lagt hald á í húsleit hjá útgerðarfyrirtækinu. Af þessum sökum hefur Seðlabankinn ekki getað afritað þau gögn sem er að finna í spjaldtölvunum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dómi Hæstaréttar Íslands þar sem staðfestur er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá dómi kröfu Samherja um að Seðlabanka Íslands verði gert að hætta rannsókn á meintum brotum félagsins á lögum um gjaldeyrismál og húsleitin dæmd ólögmæt. Rannsókn Seðlabankans á Samherja heldur því áfram. Grunsemdir vöknuðu um frekari lögbrot hjá Samherja við skoðun á tölvuskeytum starfsmanna fyrirtækisins.

Seðlabankinn hefur frá því í lok mars rannsakað starfsemi Samherja. Til rannsóknar er grunur um að fyrirtækið hafi selt fisk til þýsks dótturfélags síns, DFFU, á undirverði. Sérstaklega er rætt um að karfi hafi verið seldur til félagsins á undirverði. Með þessu á Samherji að hafa tekið út hagnað af fiskveiðum hér á landi í gegnum erlend dótturfélög með ólöglegum hætti fram hjá gjaldeyrishaftalögunum sem sett voru á Íslandi eftir efnahagshrunið 2008. Þessi hagnaður Samherja á því, samkvæmt þessu, að vera tekinn út í öðrum löndum en ekki hér á landi. Í kjölfarið kærði Samherji aðgerðirnar til Héraðsdóms Reykjavíkur sem vísaði kröfu fyrirtækisins frá dómi á þeim forsendum að ekki lægi enn fyrir nein niðurstaða í rannsókn Seðlabankans um ólögmæti viðskipta útgerðarfyrirtækisins.

Nánar fyrir áskrifendur hér fyrir neðan:

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.