Sakaður um að skemma fyrir Ástþóri: „Ég er saklaus“

Kristján Sigmundsson er sagður hafa falsað meðmælendalista Ástþórs

Ég er saklaus ég hef engar undir­skriftir falsað,“ segir Kristján Óli Níels Sigmundsson, einn þeirra sem safnaði undirskriftum til stuðnings framboði Ástþórs Magnússonar til forseta. Kristján hefur verið nefndur „maðurinn sem felldi Ástþór“, á vefmiðli Eiríks Jónssonar fréttamanns.

Kristján segist ekki hafa hugmynd um hvers vegna hans nafn sé nefnt í þessu samhengi. „Mér hefur ekki verið tjáð um málið frekar, né hef ég fengið að sjá þessa meintu fölsuðu undirskriftalista. Ekki hef ég fengið að sjá hvort mitt nafn sé sjálft falsað.“

„Það liggja engar sannanir fyrir þessu. Ég get ekki ásakað þennan dreng. Ekki get ég séð út úr þessum listum að þeir séu falsaðir,“ segir Ástþór Magnússon aðspurður við DV um réttmæti ásakana á hendur Kristjáni.

Þetta er aðeins hluti fréttarinnar úr DV í dag. Áskrifendur geta lesið hana alla hér á DV.is.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.