Yfirgnæfandi meirihluti lesenda DV.is telja að það hafi verið rétt af Andreu Ólafsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni og Hannesi Bjarnasyni, að ganga út úr kappræðum Stöðvar 2 í Hörpu í gærkvöldi. Þetta er niðurstaðanetkönnunar DV.is
1.583, eða rétt tæplega 78 prósent þeirra sem svöruðu spurningunni – Var rétt af Andreu, Ara og Hannesi að ganga út? – töldu þau hafa brugðist rétt við með því að yfirgefa útsendinguna.
376, eða 18,5 prósent, telja að þremenningarnir hafi ekki gert rétt með að yfirgefa salinn. 52, eða 2,6 prósent, eru óákveðnir.
Atvikið, sem varð í beinni útsendingu Stöðvar 2 í gær hefur vakið mikla athygli. Á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi birtir Ari Trausti meðfylgjandi tilkynningu þar sem hann meðal annars kveðst harma ummæli Þorbjörns Þórðarsonar, fréttamanns Stöðvar 2 og annars umsjónarmanns kappræðnanna, um að „eða eða við seilumst með gjörðum okkar til dagskrárgerðar fyrirtækisins. Þau eru tilbúningur.“
Tilkynningu Ara Trausta má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:
„Vegna atburðanna á Stöð 2:
Ég ( eins og Andrea, Hannes og Herdís) mætti til leiks eftir að hafa komist að því (kl. 13.11 í dag - að eigin frumkvæði) að Stöð 2 var í raun ekki að skipuleggja kappræður heldur spurningar og svör frá okkur frambjóðendum. Við komum í Hörpu í góðri von og af skyldu við kjósendur eftir að hafa unnið fréttatilkynningu fjögur saman. Í henni var einföld krafa um að Stöð 2 drægi um röð mælenda, bæði í tíma og eins til að ákveða hverjir stæðu saman til svara - þannig að Þóra og Ólafur stæðu ekki, nema þá fyrir tilviljun, undir lokin sem par. Um þá stöðu hafði meðal annars gagnrýni fjöldans snúist og einnig var ljóst að fólk vildi fá umræður allra sex frambjóðenda - maður á mann - ég t.d. að ljóða á Þóru og öfugt, enda fundurinn auglýstur sem slíkur.
Okkur þótti þetta einföld, skýr, lýðræðisleg og sjálfsögð lágmarksbeiðni sem auðvelt væri að bregðast við og við fórum þar með ekki fram á sex manna kappræður enda fyrirvari of stuttur til slíkra breytinga. Stöð 2 hafði ekki samband í eftirmiðdaginn eins og eðlilegt hefði verið sem viðbrögð við fréttatilkynningunni og þegar ljóst var við komu í Hörpu að við vildum breytingar tók það klukkustund að koma með afsvar: Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að koma til móts við okkur. Það sýnir sig síðar að vera meira en umdeilanlegt því eftir brottför okkar gekk þátturinn sinn gang með gjörbreyttu tæknilegu fyrirkomulagi.
Yfirlýsinguna lásum við Andrea en Hannes stóð þétt að baki okkar:
"Ljóst er að sá kappræðufundur sem okkur var boðið til er í raun fundur með spurningum og svörum til tveggja frambjóðenda í einu og þar með fjarri öllum umræðum frambjóðendanna sex. Þóra og Ólafur Ragnar standa saman í lokin eins og upphaflega var áætlað. Sem lágmarks lýðræðiskröfu höfum við sett fram þá eindregnu beiðni - gerðum það síðdegis í dag - að dregið yrði um röð frambjóðenda, bæði hvað varðar tímaröð og einstaklinga sem standa saman. Þessu hafnar fjölmiðillinn af tæknilegum ástæðum innan við klukkustund fyrir útsendingu. Að þessu fengnu ákveðum við, Andrea, Hannes og Ari Trausti, að yfirgefa fundinn og skorum á Þóru og Ólaf Ragnar að gera slíkt hið sama. Okkur er misboðið. Lýðræði er jafnrétti. Jafnrétti er mannréttindi."
Herdís kaus að sitja áfram og virðum við þrjú hennar viðhorf og hún okkar.
Ég harma orð umsjónarmanns á vegum Stöðvar um að ég eða við seilumst með gjörðum okkar til dagskrárgerðar fyrirtækisins. Þau eru tilbúningur.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum