Í fréttum í gær sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að hann vildi fara varlega í að auka eftirlit með barnaníðingum. Rætt var svo við Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnaverndarstofu, í Morgunútvarpinu á RÚV í morgun og sagði hann þar að hann væri sammála því að stíga þyrfti varlega til jarðar í þessum efnum. Það sé hins vegar skylda samfélagsins að reyna að stöðva hættulegustu mennina með einhverjum hætti.
„Lítill hópur einstaklinga er haldinn svokallaðri barnagirnd á mjög háu stigi. Hvötum sem þeir ráða ekki við sjálfir. Það er vel þekkt að þessir menn eru mjög hættulegir börnum vegna þess að það eru miklu meiri líkur en minni á að þeir endurtaki brot sín. Þetta er mjög lítill hópur. Við erum kannski að tala um á Íslandi á milli 5 og 10 einstaklinga sem menn hafa ekki kunnað nein ráð við innan núverandi umhverfis að höndla og nálgast.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013